- Próf númer 2 farið í rassgatas rass
- Rosa þæginlegt að vera búin með þetta próf en samt er ég einhvern veginn ennþá með lúmskan hnút í mallanum, því ekki gekk mér neitt súper dúper vel en ég stóð mig eins og sannkölluð hetja í giskinu 
- Æi ég get nú lítið gert í þessu núna vona bara að ég slefi yfir fimmuna, þá verð ég hoppandi kát með lífið og tilveruna. 
- Eftir klukkan 22:00 í gærkvöldi kom ég heim frekar þreytt eftir 10 tíma setu á bókhlöðunni, vonaðist eiginlega eftir því að ég gæti aðeins misst mig við hann móður mína því stressið var sko alveg komið í ljós á þessum tímapunkti
.
- Enginn heima þegar ég mæti í Eikarásinn svo ég bjalla hálf snöktandi í pabba og segi honum að ég sé alveg að kúka í buxurnar.
- Svo reddaði Nínan mér gjörsamlega, kom og sótti mig í 20 mínútna bíltúr svo ég færi nú ekki að heimsækja klósettið enn eina ferðina.
- Náði nú að gleyma mér í þessar mínútur með Nínunni enda ekkert búin að sjá hana í nokkra daga, látum það sko ekki gerast eftir þessi próf 
- Svo var það beint heim aftur og hellt sér yfir bækurnar og fá meira stresskast.
- Mín yndislega mamma frétti af símtalinu milli mín og pabba og kom upp til mín og reyndi að vera sálinn minn í smá tíma, svo var hún svo æðislega frábær og hitaði fyrir mig vatn með hunangi til að róa taugarnar. 
- Eins og með fyrra prófið þá var svefninn lítið festur en ég náði þó að gleyma mér í 4 tíma. Samt gleyma og ekki gleyma....................mér dreymdi án alls djóks efnafræðina, svo var ég vöknuð á undan vekjarklukkunni sem gerist ALDREI 
- Skellti mér klukkan 6:30 aðeins út með Töru til að hreinsa loftið í lungunum.
- Svo var lært til 8:00
- Eftir það fékk ég tvo fyrirlestra hjá tveimur sálum (mamma&pabbi) áður en lagt var á stað upp í Eirberg. 
- Um leið og ég settist inn í sportbílinn minn þá fyrst fattaði hversu mikið stressuð ég var.
- Mín FRÍKAÐI 




- Skellti nýja laginu hans James Blund – Same Mistake sem er efst á lista þessa stundina í tækið og hækkaði í botn...........þá hófst fjörið.
- Þið sem þekkið mig vitið að ég syng ALDREI en í morgun gerðist eitthvað furðulegt kraftaverk..........um leið og “Same mistake” hljómaði þá byrjaði mín að syngja eins og ég ætti lífið að leysa, ég meina það sko.............get varla sagt frá þessu atviki, lét eins og geðsjúklingur sem ætti að vera í einangrun það sem eftir er 

.
- jújú ef höldum áfram þá keyrir mín að stað og með Bluntinn í botni gjörsamlega á háa C-inu með magic í vinstri plús stýrið og glósurnar í þeirri hægri......................hjálpi mér, hvað ætli fólk hafi verið að hugsa þegar það sá mig?? Eitt er víst að ég tók ekki eftir einu né neinuí kringum mig.
- Heyrðu svo þegar ég er komin í Kópavoginn er löggan að mæla alveg týpískt fyrir mig að vera stoppuð.....eins og það hafi ekki gerst áður


- Fyrsta sem kom upp í hugann minn var; “Fokk ég með kastarana á, magic í vinstri og glósur í hægri á fullu að læra og ekki má gleyma honum Blunt sem var í botni.” Var alveg næstum því farin að skæla úr áhyggjum og reyna að hugsa góða afsökun fyrir þessu öllu saman ef þeir skildu nú stoppa mig...........hef nú gert ágætishluti í því áður (hóst rautt ljós, ób-kort, drekka, hvaðan er ég að koma hóst)
- En það var svo algjör óþarfi að hafa svona miklar áhyggjur af þessu öllu saman því löggukallarnir voru bara lúllandi í bílnum hahahaha frekar spes 
- Þegar ég var alveg að koma þá skellti “The creeps með Freaks” í tækið og tók nokkrar vel valdar rokksveiflur til að fá útrásina eftir magicinn. Og veistu Drífa þetta lag er SJÚKT, gæti misst mig yfir þessu lagi uuuuu....sem og ég gerði reyndar
- En kræst hvað þetta er orðin löng færsla og ég gæti haldið alveg töluvert áfram sem segir mér bara eitt..........ég nenni ekki að læra meir.
- Kannski ég fari bara í læruverkfall má það hhhhmmmmm........

Hafið það gott sæta fólk og munið...................allir í skóginum eigi að vera vinir ekki gleyma því, hlöðuormurinn kveður að sinni
See-ya TinTin